15.12.2008 | 17:56
skurður!
Já ég var nú skorin á fimmtudagsmorgun og allt gekk vel en svo um helgina fór ég ógætilega og reif upp eða það losnaði saumur svo að ég fór á slysó og þetta var límt og nú má ég ekki hreifa hendina , mjög ervitt, ha ég er ekki góð í því er samt ekki að segja að ég sé svo dugleg, heldur að ég kann ekki að láta stjana við mig ,er betri í því að stjana við aðra.
jamm jamm eins og afi sagði alltaf ( Sigurður Arngríms ). Nú er dóttir okkar að elda fyrir okkur gömlu, eitthvað gott, á að koma á óvart!
ég má ekki fara fram í eldhús , verð að hlíða því og held áfram að lesa.
10.12.2008 | 22:23
Systrahittingur
Já það var frábært að hitta þær Bobbu og Sissu við vorum náttúrlega eins og vinglar í Smáralyndinni, ef að það væru ekki til gemsar , þá værum við enn þá að leita að hvorri annari ha
ha ha . En fyrir tilveru gsm þá áttum við frábæra stund saman og grétum úr hlátri ( í orðsinns fyllstu merkingu) offt. og svo borðuðum við saman og það var talað og talað alveg þar til að okkur var næstum hent út af matsölustaðnum því að það var búið að loka, og þá var kl orðin 8 svo að við kvöddumst bara og fórum heim.Já við ætlum sko að gera þetta miklu oftar, en nú er ég búin að skrifa nóg í bili og er að fara að undirbúa mig fyrir morgundaginn , sem sagt uppskurð
eða þannig sko.
fyrir mér.
9.12.2008 | 20:38
smákökur
Var að baka smákökur í dag (seinni partinn) bara 3 tegundir, svaka dugleg
en hjerna í gamla daga!! þá bakaði maður 5 til 8 sortir HA
. Jæja maður er nú bara góður eins og er sagt nú til dags , er það ekki. Það er bara verst að maðurinn étur kökurnar jafn óðum
þannig að ég verð að gera eins og í gamladaga þegar að ég límdi boxin aftur með glæru límbandi hehehe og kom svo að honum þar sem að hann var að reyna að opna kökuboxið og skildi ekkert í þessu ( sá ekki límbandið). Jæja hef ekki meira að segja í bili , jú ég ætla að hitta systur mínar á morgun í Smáralynd, um kl 5.
8.12.2008 | 23:26
Jólakorta skrif
Já ég er búin að vera að skrifa á jólakortin í dag og er alveg að verða búin, ákvað að vera búin fyrir fimmtudag því þá á að skera vinstri hendina á mér, ég er fegin að vera búin að ákveða þetta ég meina að klára að láta skera hina þannig að ég ætti að vera góð í höndonum í nokkur ár eða þannig.
7.12.2008 | 16:00
Er lasin veik.
Ég er búin að vera að drepast í maganum og með uppköst í nótt og í dag, þetta er víst að ganga og maður verður víst að sætta sig við það ,en það er mikið um að vera í dag er aðventumessa kl 5 og svo á að kveikja á jólatréinu í Aragerði á eftir um kl 6 , en ég treisti mér ekki til að fara að syngja við messuna, og ætlar kirkjukórinn að borða saman hangjikjöt og hafa svona jóla hvöld hjá sér þetta er alltaf gert eftir aðventumessuna, þannig að ég verð að missa af þessu núna. ekki glöð.
4.12.2008 | 22:37
Er bara góð.
Ég er orðin ágæt í hendinni, það er í lagi að gera smá . En það á að skera hina á fimmtudaginn 11-des svo að ég verð handlama um jólin, já Vally það skuluð þið gera bara að hringja fyrst upp á að ég verði heima, æ sorry að ég skrifaði þetta ekki í athugasemdir hjá þér. Jæja en ég er búin að gera tobleron köku fyrir Kötu sem á að fara á basarinn ( sko kakan ekki kata) nú ætla ég ekki að skrifa meira að sinni GÓÐAR STUNDIR.
4.12.2008 | 17:27
Dálítið dugleg í dag.
Ég er búin að vera bara dugleg í dag, fór og verslaði var með sonarsoninn einn af þremur með mér, hann er 9ára og hjálpaði mér mikið. Svo bakaði ég smákökur og tertu fyrir hana Kötu mína því það er basar hjá 10 bekk á morgun. Skrifa meira seinna.
3.12.2008 | 17:35
alveg tóm.
Ég þarf að segja eitthvað en ég veit ekki hvað það á að vera, ég er búin að vera í kapli í góða stund , stundum held ég að ég sé spilasj!!! en ég vona ekki ,þetta er sjúkdómur. Jæja ég var að keira dóttur mína í kef hún var að fara að þrífa fyrir bróður sinn (sem sagt frumburð minn). en nú ætla ég að fara að elda fyrir manninn minn , bless á meðan ef einhver sér þetta.
2.12.2008 | 18:41
Jæja
Loksins er ég komin með bloggsíðu,vona að ég verði dugleg að skrifa inn mínar hugleiðingar
Um bloggið
Svandís Magnúsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar